Hvað er andleg einkaþjálfun?

Ég hef alltaf vitað að eitthvað þurfti að breytast í mínu lífi. Ég var þreytt, stressuð og oft óörugg í sjálfri mér. Ég reyndi að hugsa jákvætt, að ögra sjálfri mér, laga allt sem virtist „rangt“ – en ekkert virtist virka til lengdar.

Þá fann ég andlega einkaþjálfun.  

Í byrjun ætlaði ég að gefa manninum mínum tíma í andlegri einkaþjálfun í afmælisgjöf, því hann hafði verið að glíma við andleg veikindi og mér fannst þetta kjörin gjöf fyrir hann… en hann var ekki eins sammála og endaði ég á að gefa honum tálgunarsett sem er enn ónotað ofan í skúffu.  En hann í staðinn hvatti mig til að fara í þetta nám, já yndislegur maður sem ég náði mér í og get ég ekki þakkað honum nógu mikið fyrir að hafa ýtt mér út í þetta nám.

Mér skildist að þetta væri ekki eins og hefðbundin „hugarþjálfun“ eða sjálfshjálparbók. Þetta var ferli sem gerði mér kleift að skilja sjálfa mig betur, hlusta á líkamann og taugarnar mínar og læra að styðja sjálfa mig í stað þess að berjast á móti tilfinningunum og leyfa varnarkerfinu mínu að taka stjórnina.

Stílabækur og bréf í hrúgu

Hvað er andleg einkaþjálfun?

Andleg einkaþjálfun snýst um að vinna með þig sem einstakling. Hún byggir á því að:

  • Skilja hvernig hugsanir, tilfinningar og líkamleg viðbrögð tengjast hvort öðru.
  • Grúska í æskunni þinni og finna hvar á leiðinni misstir þú sjónar á kjarnanum þínum, hver þú ert inn við beinið.  Og hjálpa þér að stilla aftur á “kjarnarásina”.
  • Finna leiðir sem henta þér persónulega, ekki einhver „algild lausn“.
  • Hjálpa þér að byggja upp jafnvægi, öryggi og innri styrk í þínu eigin lífi.
  • Leyfa þér að vera þar sem þú ert, án þess að pressa þig í að verða „betri“ á augabragði.

Þetta er ekki flýtileið eða töfralausn þess vegna miðum við við 12 mánaða meðferð. Þetta er samvinna, smá skref og gagnkvæm virðing sem hjálpar þér að komast á þann stað sem þig hefur dreymt um.  Þetta kostar mikla vinnu en vinnu sem er margfalt þess virði því það kostar líka mikla orku og vinnu að líða ekki nógu vel í sínu skinni.

Hvernig andleg einkaþjálfun hefur hjálpað mér

Fyrst og fremst hefur hún kennt mér að hægja á mér. Að hlusta á sjálfa mig, líkama minn og tilfinningar. Ég hef lært að skilja mynstur sem áður gerðu mig kvíðna eða óörugga. Ég hef lært að styðja sjálfa mig í stað þess að dæma mig.

Ég hef þurft að horfast í augu við það að varnarkerfið mitt hefur sett mig á sjálfstýringu í alltof mörg ár.  Ég hafði ekki orkuna og hugurinn tók völdin.  

Ég fór djúpt í æskuna mína, sem var alls ekkert slæm, bara þessi “týpíska” á þessum tíma.  Tilfinningar voru ekki í hávegum hafðar og ýmislegt sagt og gert sem situr eftir í lítilli sál sem ég gerði mér ekki endilega grein fyrir að hafði svo svona stór áhrif á líf mitt sem fullorðin manneskja.  En mikilvægt finnst mér líka að í þessu ferli er mér kennt að skilja aðstæðurnar, hvaðan kem ég, foreldrar mínir og forfeður.  Við mótumst öll af okkar æsku og það finnst mér vera mikilvægt að skilja.  

Við það að fara í þessa andlegu vinnu, get ég séð hvernig líf mitt hefur breyst.  Ég er mun rólegri og sáttari við sjálfa mig.  Ég hræðist ekki að standa með sjálfri mér og hrósa mér fyrir bæði hversdagslega hluti og hluti sem reynast mér erfiðir.  Ég hef meiri skilning á hvernig aðrir koma fram og tek ekki nærri mér það sem aðrir segja.  Ég get alveg sagt með góðri samvisku – þetta líf er mun skemmtilegra og auðveldara eftir þessa vinnu.

Mynd með orðunum: "Virði mitt er ekki ákvarðað út frá skoðunum annarra. Ég ákveð það sjálf"

Af hverju þessi grein?

Ástæðan fyrir því að ég vildi opna þessa vefsíðu með þessari grein er sú að ég hef fengið ótal spurningar þetta síðasta rúma ár sem ég er búin að vera í þessu námi hvað andleg einkaþjálfun sé.  Margir tengja hana við eitthvað yfirnáttúrulegt því orðið “andlegt” hefur oft verið tengt við það.  Það er alveg hægt að segja það að þetta sé eitthvað yfirnáttúrulegt því hugurinn er jú eitthvað sem við getum ekki snert, en hann er þarna svo sannarlega, en ég tengi samt andlega einkaþjálfun við að ná stjórninni á huganum og lífinu.  

Ég vildi líka gefa smá innsýn í það hvað andleg einkaþjálfun hefur gert fyrir mig persónulega.  Hún hefur ekki bara gefið mér tól eða aðferðir til að komast í gegnum lífið, hún hefur gefið mér nýjan kafla í mínu lífi þar sem ég hef stjórnina (já ég er Ljón og elska að hafa stjórnina), líf með meiri ró og sjálfstrausti, hver er ekki til í það?

Ef þig dreymir um að byrja í sjálfsvinnu, ert á tímamótum í þínu lífi, ert með lítið sjálfstraust, finnst þú vera föst/fastur eða langar bara að skilja þig betur þá er andleg einkaþjálfun fyrir þig.  Þú ferð ekki í þessa vinnu til að breyta þér í einhverja aðra persónu heldur til að verða besta útgáfan af sjálfri/sjálfum þér.

One thought on “Hvað er andleg einkaþjálfun?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *