Um Hugarfar

Um mig

Ég heiti Alla og er andlegur einkaþjálfari. Ég vinn með fólki sem vill efla innri styrk, jafnvægi og heilbrigt hugarfar. Í minni vinnu sameinast andleg einkaþjálfun, sjálfsþekking og hagnýt verkfæri sem styðja fólk í að bæta líðan, byggja upp sjálfstraust og skapa raunverulegar breytingar í lífinu.

Ég trúi því staðfastlega að andleg einkaþjálfun sé jafn mikilvæg og líkamleg einkaþjálfun. Hugurinn, tilfinningarnar og sjálfsmyndin eru grunnurinn að andlegri heilsu, samböndum og daglegri líðan.

Ég hef lokið námi í andlegri einkaþjálfun og styð fólk í að skilja sjálft sig betur, vinna með streitu og innri spennu, styrkja sjálfsmyndina og byggja upp hugarfar sem styður við langtíma vellíðan og jafnvægi.


Reynslan mín

Það er ekki einungis menntun sem ég nýti í minni vinnu, heldur líka lífsreynsla.

Ég er móðir fatlaðra barna og systir fatlaðs einstaklings. Ég hef sjálf upplifað kulnun, andlegt álag og tímabil þar sem lífið kallaði á að ég hægði á, hlustaði inn á við og endurbyggði tengslin við sjálfa mig. Sú vegferð hefur kennt mér dýrmæta hluti um sjálfsumhyggju, mörk, seiglu, sorgarvinnu, von og innri styrk.

Ég veit hvernig það er að bera mikla ábyrgð, vera sterk fyrir aðra – og um leið þurfa að læra að verða mild, heiðarleg og nærandi gagnvart sjálfri sér.


Ferðalangur í lífinu

Ósjaldan er mér líkt við fiðrildi því ég flögra út um allt. Ég elska að vera fiðrildi og hef aldrei passað vel í hjörðina – og vil það heldur ekki. Ég trúi því að hver manneskja hafi sína einstöku vegferð, sinn takt og sitt innra kall.

Í starfi mínu sem andlegur einkaþjálfi býð ég ekki upp á staðlaðar lausnir, heldur hlýja, örugga og persónulega leiðsögn. Ég mæti fólki þar sem það er statt og styð það í að byggja upp heilbrigt hugarfar, auka sjálfsþekkingu og skapa breytingar sem koma innan frá og því líklegri til að endast.

Markmiðið er ekki að laga þig – heldur að hjálpa þér að tengjast sjálfri/ sjálfum þér, styrkja innri grunn og skapa líf með meiri ró, skýrleika og sjálfstrausti.