12 mánaða andleg einkaþjálfun
Andleg einkaþjálfun er markviss vinna með hugann, tilfinningar, fyrri áföll og lífsmynstur. Markmiðið er að hjálpa þér að skilja sjálfa/n þig betur, styrkja tengslin við þinn innri kjarna og skapa meira jafnvægi í daglegu lífi. Í þessari vinnu skoðum við meðal annars hvernig fortíðin (sérstaklega æskan) hefur mótað hugsanir þínar, viðbrögð og líðan. Andleg einkaþjálfun snýst ekki um að „laga“ þig heldur um að kynnast sjálfri/sjálfum þér betur, skilja hvað hefur haft áhrif á þig og fá verkfæri sem geta hjálpað þér að lifa með meiri meðvitund, mildi og sjálfsumhyggju.

Námskeiðið er 12 mánaða markviss þjálfun þar sem unnið er skref fyrir skref í átt að því að styrkja þig og færa þig nær bestu útgáfunni af sjálfri/sjálfum þér. Á þessum tíma hittumst við einu sinni í mánuði í 60-90 mínútna einkatíma í gegnum netið þar sem við förum yfir stöðuna, ræðum verkefnin og vinnum með það sem er að koma upp hjá þér í ferlinu. Samhliða einkatímunum færðu fræðslu um ýmis málefni sem tengjast andlegri vinnu, auk verkefna og æfinga sem hjálpa þér að vinna dýpra með efnið. Í námskeiðinu deili ég einnig reynslusögum og innsýn sem geta hjálpað þér að spegla þína eigin vegferð og sjá hlutina í nýju ljósi.

Allt námskeiðið fer fram á netinu sem gerir þér kleift að taka þátt hvar sem þú ert í heiminum. Þú getur unnið efnið á þínum hraða og á þínum forsendum, en færð jafnframt reglulegan stuðning og leiðsögn í gegnum einkatímana. Þetta er vegferð sem krefst heiðarleika og vilja til að skoða sjálfa/n sig, en getur á móti fært þér dýpri skilning á sjálfri/sjálfum þér, meiri innri ró og sterkari tengingu við lífið og fólkið í kringum þig.
Ef þetta vekur áhuga þinn, hefur einhverjar spurningar eða langar að skrá þig á námskeið í andlegri einkaþjálfun fylltu þá út formið hér að neðan og ég hef samband við þig.
